Aðalfundur Félags eldri borgara í Siglufirði fór fram í gær í sal Skálarhlíðar. Fundurinn var vel sóttur en alls mættu 29 félagsmenn til fundarins.
Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Fundargerð síðasta aðalfundar var lesin upp og samþykkt, farið var yfir ársreikning félagsins og kosning stjórnar fór fram. Að loknum hefðbundnum fundarstörfum var boðið upp á kaffiveitingar þar sem félagar nutu samverunnar.
Þrír nýir félagar gengu til liðs við félagið á fundinum og voru þeir boðnir sérstaklega velkomnir í hópinn.

Stjórn Félags eldri borgara í Siglufirði eftir kosningu á aðalfundi. Á myndinni eru frá vinstri Ólafur Þór Ólafsson, Una Agnarsdóttir, Pálína Pálsdóttir og Ólafur Baldursson formaður. Brynhildur Bjarkadóttir var fjarverandi á fundinum.
Ný stjórn kjörin
Kosning stjórnar fór fram og skipa eftirtaldir aðilar nú stjórn Félags eldri borgara í Siglufirði:
Ólafur Baldursson formaður.
Pálína Pálsdóttir gjaldkeri.
Ólafur Þór Ólafsson ritari.
Brynhildur Bjarkadóttir meðstjórnandi.
Una Agnarsdóttir meðstjórnandi.
Ný í stjórn eru Ólafur Þór Ólafsson og Una Agnarsdóttir.
Þau Guðleifur Svanbergsson og Karólína Sigurjónsdóttir létu af störfum í stjórn að þessu sinni. Félagið þakkar þeim fyrir frábær störf í þágu félagsins og þann tíma og kraft sem þau hafa lagt í starfsemina.
Fundurinn fór vel fram og ríkti góð stemning meðal fundargesta.
Meðfylgjandi myndir tók Albert Gunnlaugsson, ritstjóri Tunnunnar, og eru þær birtar hér með góðfúslegu leyfi hans.




