Tónlistarskólinn á Tröllaskaga býður upp á vöfflukaffi í tilefni öskudags, miðvikudaginn 18. febrúar. Boðið verður upp á öskudagskaffi í öllum húsum skólans.

Á Dalvík verður tekið á móti gestum frá klukkan 9:00 til 11:00 en í Ólafsfirði og á Siglufirði frá klukkan 12:00 til 14:00.

Gestir þurfa einungis að syngja eitt lag fyrir starfsfólk og nemendur til að fá vöfflu. Viðburðurinn er hluti af hefðbundinni öskudagshátíð þar sem börn og gestir heimsækja stofnanir og gleðja með söng.

Forsíðumynd: pixabay