Nauðsynleg öryggisuppfærsla á færðarkortinu á umferdin.is tekur lengri tíma en áætlað var af óviðráðanlegum ástæðum.

Það þýðir að upplýsingar birtast ekki á kortinu, þetta ástand mun líklega vara fram á kvöld.

Tilkynningar í textaformi og upplýsingar hægra megin á síðunni birtast. Sjá skjáskot.  Eins virka vefmyndavélarnar og hægt að sjá ástandið á þeim.

Þar er að finna upplýsingar um ástandið eins og það er og eins upplýsingar um hugsanlegar lokanir. Upplýsingar um lokanir ef til þeirra kemur birtast þar þótt þær sjáist ekki á kortinu sjálfu.

Svo sem kunnugt er þá eru veðurviðvaranir á Suðausturlandi sem taka gildi í kvöld og nótt. Hringvegurinn frá Skógum og austur á Mýrdalssand (frá kl. 18:00) og í Öræfasveit frá Skaftafelli austur að Jökulsárlóni (frá kl. 22:00) eru á óvissustigi og líklegt að komi til lokana meðan versta veðrið gengur yfir.

Skjáskot: Vegagerðin