Nýjasta lag September er komið út á streymisveitum. Lagið sem nefnist Hammer To Fall er sungið af söngvaranum Birgi.

Birgir Steinn Stefánsson er ungur lagahöfundur sem hefur gert gott mót á streymisveitum undanfarin ár, en lagið hans Can You Feel It hefur fengið um 22 milljónir spilana á Spotify. Birgir gaf út sína fyrstu plötu, Untold Stories í maí á þessu ári.

September er lagahöfunda- og framleiðslu teymi skipað af þeim Eyþóri Úlfari Þórissyni og Andra Þór Jónssyni og hafa þeir síðastliðin þrjú ár gefið út lög sem þeir hafa unnið ásamt þekktum íslenskum söngvurum þ.á.m. Jóni Jónssyni og Birgittu Haukdal.

Höfundar lags og texta:: Andri Þór Jónsson, Eyþór Úlfar Þórisson.

Lagið Hammer To Fall verður leikið á FM Trölla í þættinum Tíu Dropar milli kl. 13 og 15 í dag.