Á 908. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar lá fyrir samantekt bæjarstjóra um gögn og viðræður við áhugasama aðila um rekstur upplýsingamiðstöðvar í sveitarfélaginu sumarið 2026, að loknum fundum með hverjum og einum umsækjanda.

Bæjarráð fól bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Evanger um rekstur upplýsingamiðstöðvar næsta sumar, að uppfylltum tilteknum skilyrðum um þjónustu í báðum byggðakjörnum sveitarfélagsins. Jafnframt var lagt upp með að horft yrði til samstarfs við Pálshús um upplýsingagjöf og miðlun efnis á Ólafsfirði.

Drög að samstarfssamningi verða lögð fyrir bæjarráð til afgreiðslu.