Stofnfundur Kirkjukórs Fjallabyggðar var haldinn miðvikudaginn 18. febrúar 2026 í safnaðarheimili Ólafsfjarðarkirkju. Á stofnfund mættu 27 félagar úr kirkjukórum Siglufjarðarkirkju og Ólafsfjarðarkirkju, ásamt kórstjóra.

Síðan í september 2025 hafa kórar Ólafsfjarðarkirkju, sem var stofnaður 1916 og Siglufjarðarkirkju, sem stofnaður var 1908, starfað saman undir stjórn Ave Köru Sillaots og sungið í kirkjum í Fjallabyggð. Eftir það samstarf var mikill áhugi meðal kórfélaga að stofna sameiginlegan kór í Fjallabyggð. Að lokinni kynningu meðal kórfélaga ákváðu stjórnir þeirra að boða til stofnfundar sameiginlegs kirkjukórs í Fjallabyggð, 18. febrúar 2026.

Á fundinum voru samþykktir fyrir Kirkjukór Fjallabyggðar staðfestar og kosinn stjórn og skoðunarmenn reikninga.
Í nýju stjórninni eru:

Formaður – Jónína Kristjánsdóttir
Gjaldkeri – Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir
Ritari – Ólafur Þór Ólafsson
Meðstjórnandi – Hafdís E Jónsdóttir
Meðstjórnandi – Anna Þórisdóttir
Varamenn – Katrín Freysdóttir og Helena Reykjalín Jónsdóttir

Nú er lag fyrir áhugasama að ganga til liðs við frábæran hóp kórfélaga í Kirkjukór Fjallabyggðar.

Mynd: aðsend