Samningur Fjallabyggðar og Landhelgisgæslu Íslands um þjónustu við varðskipið Freyju og tengd verkefni rennur út í haust. Af því tilefni óskaði bæjarstjóri eftir heimild bæjarráðs til að hefja viðræður um áframhaldandi samning á grundvelli fyrri samnings.

Bæjarráð samþykkti á sínum 908. fundi að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Landhelgisgæslu Íslands.