Fajita ofnskúffa

  • 8 mjúkar tortillakökur
  • Pam sprey
  • 1 msk laukduft
  • 1 msk hvítlauksduft
  • 1 msk cummin
  • 1 tsk kanil
  • 1 msk chiliduft
  • 1 tsk óreganó
  • salt
  • pipar
  • 900 g kjúklingabringur
  • 4 msk ólívuolía
  • 1 flaska mexíkóskur bjór
  • 2 rauðar paprikur
  • 2 rauðlaukar
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 2 lime
  • 1/4 bolli hakkað ferskt kóríander
  • 1 bolli rifinn cheddar ostur
  • sýrður rjómi og salsa sósa til að bera fram með

Skerið tortillukökurnar í strimla og setjið á ofnplötu. Spreyið olíu yfir (ég nota PAM) og bakið við 180° í um 10 mínútur. Snúið strimlunum eftir 5 mínútur í ofninum. Takið úr ofninum og leggið til hliðar.

Blandið saman laukdufti, hvítlauksdufti, cummin, kanil, chilidufti, óreganó, salti og pipar. Skerið kjúklinginn í bita og blandið saman við kryddblönduna. Leggið til hliðar.

Sneiðið papriku og rauðlauk og rífið hvítlauk. Steikið við háan hita upp úr  2 msk af ólívuolíu í 3-4 mínútur. Bætið fínrifnu hýði og safa af 1 lime ásamt hökkuðu kóríander á pönnuna og kryddið með salti og pipar. Leggið til hliðar.

Steikið kjúklinginn upp úr 2 msk af ólívuolíu þar til kjúklingurinn er fulleldaður, um 5-6 mínútur. Hellið bjórflösku yfir og látið sjóða í 4-5 mínútur.

Blandið tortillastrimlum, grænmeti og kjúklingi (ásamt vökva ef einhver er) saman í stórt eldfast mót og rífið cheddar ost yfir. Setjið í 200° heitan ofn þar til osturinn er bráðnaður. Berið fram með nachos, sýrðum rjóma, salsasósu og niðurskornu lime.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit