Ráðið hefur verið í starf deildarstjóra fræðslu- og frístundamála hjá Fjallabyggð.

Á 158. fundi fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar greindi sviðsstjóri frá því að Ásdís Sigurðardóttir hefði verið ráðin í stöðuna og muni hún hefja störf 1. mars.

Ásdís er Siglfirðingur og dóttir Kristrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Hafliðasonar.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

Þátttaka í mótun framtíðarsýnar og stefnumótun með hagsmunaaðilum í samræmi
við stefnur og lög sem tengjast málaflokknum

Aðkoma að gerð fjárhagsáætlana í samvinnu við sviðsstjóra

Umsjón með Frístund, frístundastarfi fyrir 1. – 4. bekk í samstarfi við grunnskólann,
íþróttafélög og tónlistarskólann

Umsjón með félagsmiðstöðinni Neon og ungmennaráði

Samstarf og samskitpi við íþróttafélög varðandi frístundastarf barna og unglinga

Umsjón með Sportabler, rafrænum frístundastyrkjum og er tengiliður við notendur

Ýmis önnur verkefni og samstarf til samræmis við þjónustumarkmið