Síðastliðna daga hefur veðrið leikið við íbúa á Siglufirði og í Fljótunum. Snjóað hefur ríkulega og hvert sem litið er blasir við hvít og ægifögur vetrarmynd. Kyrrðin og birtan hafa sett sterkan svip á byggðina og minnt á fegurðina sem fylgir norðlenskum vetri þegar best lætur.
Halldór Gunnar Hálfdansson, bóndi á Molastöðum í Fljótum, festi þessa stemningu á mynd, en þar má sjá svo kallaðan rosabaug um sólina á heiðskírum vetrarhimni. Fyrirbærið vakti athygli enda ekki á hverjum degi sem slíkt sést svo skýrt.
Á vef Veðurstofu Íslands er fyrirbærinu lýst með þessum hætti:
„Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu, oftast bliku, sem er hátt á himni. Skýjabreiðan inniheldur ekki vatnsdropa heldur ískristalla, því yfirleitt er frost svo hátt uppi. Þá brotnar ljósið frá sólinni í kristöllunum og myndast eins konar regnbogi kringum sólina.“











