Fyrir lágu niðurstöður úr verðtilboðum í gangstéttaframkvæmdir ársins 2026 á 7. fundi framkvæmda-, hafna og veitunefndar Fjallabyggðar. Sölvi Sölvason átti lægsta tilboð og mun framkvæmdasvið ganga til samninga varðandi gangstéttarframkvæmdir.

Tvö tilboð bárust og var tilboði Sölva Sölvasonar, kr. 28.000 pr/ferm tekið, hitt tilboðið var umtalsvert hærra.

Tillögur að framkvæmdum liggja ekki fyrir og verða ekki endanlegar fyrr en snjóa leysir segir Þórir Hákonarson bæjarstjóri Fjallabyggðar.