Húsnæði Vélfags á Ólafsfirði selt með fyrirvara

Húsnæði Vélfags við Múlaveg 18 á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara.

Húsnæði tæknifyrirtækisins Vélfags að Múlavegi 18 á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara, samkvæmt frétt Vísis. Þar kemur fram að kaupandi sé fundinn en að ýmsir fyrirvarar þurfi að ganga eftir áður en af kaupunum verður.

Fasteignin var auglýst til sölu í haust á 65 milljónir króna. Að sögn Björns Davíðssonar, fasteignasala hjá Hvammi sem annast söluna, er söluferlið enn í gangi og ætti að skýrast á næstu tveimur til þremur vikum hvort viðskiptin gangi endanlega í gegn.

Ekki er einungis um hefðbundinn fjármögnunarfyrirvara að ræða. Samþykki þarf bæði frá Arion banka og Utanríkisráðuneytinu í ljósi þeirra viðskiptaþvingana sem aðaleigandi félagsins sætir vegna meintra tengsla við svonefndan skuggaflota Rússa, líkt og fram kemur í umfjöllun Vísis.

Húsnæði Vélfags á Ólafsfirði selt með fyrirvara

Hér má sjá hluta af vélakosti og aðstöðu í húsnæði Vélfags á Ólafsfirði.

Starfsemi Vélfags hefur legið niðri um margra mánaða skeið eftir að Arion banki frysti fjármuni félagsins á grundvelli refsiaðgerða Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi síðasta sumar. Þá greinir Vísir einnig frá því að héraðssaksóknari hafi gert húsleit hjá fyrirtækinu og handtekið lykilstjórnendur í tengslum við rannsókn á meintum brotum gegn viðskiptaþvingunum.

Vélfag var stofnað á Ólafsfirði fyrir um þrjátíu árum og hefur frá árinu 2012 haft starfsemi í húsnæðinu við Múlaveg, en það kom fram í frétt á fréttavefnum Héðinsfjörður í haust.  Fyrirtækið framleiðir ýmiss konar tækjabúnað fyrir sjávarútveg.

Samkvæmt frétt Vísis hyggst Hæstiréttur taka fyrir mál Vélfags og Ivans Kaufmann, meirihlutaeiganda félagsins, sem krefjast þess að utanríkisráðuneytið aflétti frystingu fjármuna fyrirtækisins. Niðurstaða þess máls kann að hafa áhrif á framhaldið, bæði varðandi starfsemi félagsins og endanlega afgreiðslu fasteignaviðskiptanna.

Myndir: hvammur.is

Tengt efni:

Fjallabyggð harmar stöðu Vélfags