Bæjarmálafélag Fjallabyggðar er hópur fólks úr samfélaginu sem hefur undanfarin ár boðið fram til sveitarstjórnar í Fjallabyggð undir nafni H-listans.

Félagið hefur lýst yfir vilja til að starfa áfram af heilindum fyrir samfélagið á komandi kjörtímabili.

Í kynningu félagsins kemur fram að lögð sé áhersla á samtal, traust og skynsamar ákvarðanir með það að markmiði að bæta umhverfi og daglegt líf íbúa Fjallabyggðar.

Bæjarmálafélagið auglýsir jafnframt eftir fólki sem er tilbúið að starfa með félaginu að málefnum sveitarfélagsins og vinna að betri framtíð þess.

Áhugasamir geta haft samband við Jón Valgeir í síma 894 8299 eða Helga í síma 845 2737, eða sent tölvupóst á netfangið hlistinnfjallabyggd@gmail.com.

H-Listinn á facebook