Tónlistarmaðurinn Hannes Ingi Guðmundsson gaf út á dögunum lagið „Lífinu halda engin bönd“ í minningu sonar sem lést fyrir tæpu ári síðan.

Hannes Ingi er fæddur og uppalinn í Þingholtunum á Urðarstíg í Reykjavík. Hann átti spænska móður en íslenskan föður og ólst því upp við að tala bæði íslensku og spænsku samhliða. Hann starfar í dag sjálfstætt sem lögfræðingur í slysamálum.

Lagið er komið í spilun á FM Trölla.

Um tilurð lagsins segir Hannes Ingi.

„Ég er giftur og eignaðist þrjú börn með konu minni Ingu, Jóhann Snær (30), Héðinn Már (21) og Regn (18) heita þau en við misstum Héðinn okkar í fyrra í maí 2025. Fyrir átti ég dóttur með minni fyrrverandi, Andreu Björk (38 ára), hún eignaðist sitt fyrsta barn í apríl í fyrra, afastrákinn Viktor Kára.

Sonur okkar Héðinn Már tók sitt eigið líf 21. maí í fyrra eftir að hafa verið með óútskýrða langvinna magaverki í 2 ár sem læknar gátu ekki fundið orsakir fyrir. Héðinn var líka að bíða eftir magasérfræðingi en biðin eftir honum var 3 til 6 mánuðir, en Héðinn gat ekki beðið meira en hann var það kvalinn. Hann missti því vonina um bata og tók sitt eigið líf.

Sorgin yfir því að missa Héðinn okkar hefur verið óbærileg. Um Héðinn sjálfan, Héðinn okkar var frábær námsmaður, góður íþróttamaður en hann spilaði með KR í yngri flokkunum en síðan tók tónlistin við hjá honum og hann stofnaði hljómsveit sem hét Marsipan sem vann  síðan til tónlistarverðlauna á Músiktilraunum árið 2023. Hann stofnaði einnig tónlistarklúbbinn í Tækniskólanum. Fyrir utan það hvað hann var hæfileikaríkur var hann frábær manneskja, góður og hlýr og besti vinur okkar. Líkur okkur að öllu leyti, bæði í útliti og skapi. Missir okkar er því mikill.

Í nóvember 2025 byrjaði ég að semja lög í sorginni sem ég tileinka öll honum. Fyrir þann tíma hafði ég ekki gefið út neina tónlist né texta á netinu en hafði alltaf haft gaman af því að spila á gítar, fyrir mig og mína vini. Fyrir mér að búa til tónlist fyrir hann hefur verið mín heilun. Það eina í lífinu sem hefur huggað mig og veitt mér hugarró. Fyrir mér er mjög mikilvægt að sonur okkar Héðinn gleymist aldrei og hann lifi áfram á netinu. Héðinn sjálfur samdi nokkur lög sem ég hef útsett og gefið út á netinu. Við Héðinn höfðum alltaf haft þann draum að gefa út tónlist saman á netinu og jafnvel semja lag í Eurovision, sem aldrei varð af.

Ég hef gefið út 170 lög á 4 mánuðum og á 10 tungumálum á tímabilinu nóvember til dagsins í dag. Öll lög mín má finna á bandcamp.com og síðan eru flestöll lögin komin á streymisveitur, m.a. YouTube, Spotify og Amazon. Textarnir eru einnig allir á bandcamp.com undir lögunum sjálfum.

Lagið mitt „Lífinu halda engin bönd“ er samið til og tileinkað Héðni mínum. Lagið fjallar um sorgina við að missa barn. Við fæðumst inn í þennan heim og síðan hverfum við öll inn í eilífðina og við ráðum ekki ferðinni. Lífið líður hratt eins og lestarferð, þar sem myndir birtast hratt og hverfa. Síðan stöðvast lestin á áfangastað en við vitum ekki hvar né hvenær. Við getum stjórnað hluta ferðar okkar en ekki áfangastað og í ferðinni okkar í lífinu upplifum við sorgina og gleðina“.

Texti lagsins:

Ljósið kemur, fæðist fyrir ofan ský og fer.

Brosið kemur og fer,

Líkt og ljósker,

Ljósið læðist inn og vekur þig.

Ljósið slökknar, sorgin inn skýst.

Lífinu halda engin bönd.

Lestin stöðvast að lokum, þegar endastöð er náð,

Mennirnir ráða ei för.

Tilveran snýst og breytist, mótar spor okkar í sandinn.

Mennirnir breytast með, vaxa og dafna.

Lífið þýtur framhjá eins og horft er út um lestarglugga,

skuggar koma og sólin skín.

Minningar festa sig rólega, verða eftir.

Lífið kemur og fer, eins og öldur við strönd.

Lífinu halda engin bönd.

Lestin stöðvast að lokum, þegar endastöð er náð.

Mennirnir ráða ei för.

Þótt við ráðum ei för, ráðum við litunum samt.

Málum storma og logn.

Ljósið logar og lifir en eilífðin er hljóð.

Leiðir okkur áfram sérhverja stund.

Lífið kemur og fer, eins og öldur við strönd.

Lífinu halda engin bönd.

Lestin stöðvast að lokum, þegar endastöð er náð.

Mennirnir ráða ei för,

en hjartað velur sinn stað.

Sé þig,

Sé þig hinum megin,

mmmmm

Sé þig,

Sé þig hinum megin,

Sé þig hinum megin, Héðinn minn

mmmmm

Lagið: „Haltu mér fast”

Héðinn Már sonur minn syngur sjálfur og spilar fyrri kaflann í laginum sem er eftir hann sjálfan. Ég samdi síðan miðkaflann í laginu og svo tekur Héðinn Már sjálfur við aftur, syngur og spilar lokakaflann í laginu.

Meðfylgjandi er textinn:

Lyftu mér upp, haltu mér, haltu mér fast

Lyftu mér upp, haltu mér, haltu mér fast

Lyftu mér upp, haltu mér, haltu mér fast

Lyftu mér upp, haltu mér, haltu mér fast

Lyftu mér

Haltu mér, haltu mér, haltu mér fast

Haltu mér, haltu mér, haltu mér fast

Lyftu mér

Haltu mér, haltu mér, haltu mér fast,

Lyftu mér upp,

Haltu mér fast,

Haltu mér fast, lyftu mér upp

Frá jörðu til stjarnanna

Haltu mér fast, lyftu mér upp

Frá jörðu til stjarnanna

Lífið er vegur,

við vitum ekki hvert,

Lífið er vegur,

við vitum ekki hvert,

ég vel ljósið þitt

ég mun ganga með þér,

ég vel ljósið þitt

ég mun ganga með þér,

ég mun vera hjá þér

alla mína tíð, alla mína tíð.

ég mun vera hjá þér

alla mína tíð, alla mína tíð.

Lyftu mér upp, haltu mér, haltu mér fast

Lyftu mér upp, haltu mér, haltu mér fast

Af hverju erum við hér,

hvert erum við að fara?