Árleg inflúensubólusetning er hafin á heilsugæslustöðvum HSN.

Fyrirkomulag og tímasetning er mismunandi hjá stöðvunum og er fólki bent á að hafa samband við sína heilsugæslustöð varðandi bólusetningu.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensu bólusetninu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og      lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald skv. reglugerð nr.      225/2018.

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.

Sjá ítarlegar upplýsingar hjá Embætti landlæknis