Myndir: Styrkir veittir í Pálshúsi í tilefni 121 árs afmælis Rótarý

Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar heiðraði Rótarýdaginn með því að afhenda styrki til fjölbreyttra aðila í nærumhverfinu, líkt og tíðkast hefur í gegnum árin. Afhendingin fór fram á fundi klúbbsins í Pálshúsi fyrir helgi, þar sem boðið var upp á léttar veitingar.

Tilefnið var sannarlega sérstakt. Þann 23. febrúar síðastliðinn voru liðin 121 ár frá stofnun Rotary International, alþjóðlegrar hreyfingar sem hefur allt frá upphafi lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og stuðning við uppbyggjandi verkefni.

Forseti klúbbsins, Sveinbjörn Þ. Sveinbjörnsson, afhenti styrkina fyrir hönd Rótarýklúbbs Ólafsfjarðar. Einn fulltrúi frá hverju félagi mætti á fundinn og veitti styrknum viðtöku fyrir hönd síns félags.

Myndir: Styrkir veittir í Pálshúsi í tilefni 121 árs afmælis Rótarý

Að þessu sinni hlutu eftirtalin félög og stofnanir styrk:

Pálshús, fulltrúi Björn Þór Ólafsson.
Kirkjugarðurinn í Ólafsfirði, fulltrúi Ástríður Ískleif.
Kvíabekkjarkirkja, fulltrúi Kamilla Ragnarsdóttir.
Golfklúbbur Fjallabyggðar, fulltrúi Rósa Jónsdóttir.
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, fulltrúi Örn Elí Gunnlaugsson.
Skíðafélag Ólafsfjarðar, fulltrúi Sunna Eir Haraldsdóttir.

Með styrkveitingunum heldur Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar áfram að styðja við fjölbreytt og verðmæt verkefni í samfélaginu, þar sem menning, íþróttir og kirkjustarf fá að njóta sín.

Myndir með fréttinni tóku Haukur Sigurðsson og Jón Valgeir Baldursson. Facebook / Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar