Umsögn Selvíkur ehf (áður Rauðku ehf): Breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga.

Kafli 1.1 og kafli 2

Fram kemur að endurskoða þurfi aðalskipulagið vegna breyttra aðstæðna og gera ráð fyrir áframhaldandi starfsemi steypustöðvarinnar. Þá kemur fram að markmið endurskoðunar sé að búa betur um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbygginga möguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans auk þess sem lögð áhersla á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist.

Selvík ehf. bendir á að þær breyttu aðstæður sem vitnað er í og komið er betur inn á í kafla 2, eru til komnar vegna þess að:

A) Fjallabyggð hefur skorast undan því að uppfylla samkomulag sem gert var um svæðið árið 2012 þar sem fram kom að „Fjallabyggð mun sjá til þess að gengið verði frá svæðinu þar sem áhersla er lögð á útivistargildi þess og að byggð sé einungis meðfram þjóðveg og í samræmi við skipulag vestan núverandi athafnasvæðis Báss ehf“.
B) Fjallabyggð hefur sjálf dregið lappirnar í framkvæmdum við svæðið þrátt fyrir að hafa lýst yfir árið 2020 að til stæði að ljúka framkvæmdum við fyrir lok kjörtímabils árið 2022.

Bent er á að það að „kanna uppbyggingar möguleika eða skoða hvernig svæðið geti nýst“ gefur ekki til kynna að neinar stórkostlegar forsendubreytingar hafi átt sér stað varðandi svæðið, önnur en þá að tilfærsla Báss hefur ekki átt sér stað.

Kafli 2

„Á svæðinu er nú athafnasvæði með atvinnuhúsnæði auk hafnarsvæðis nyrst, en gildandi deiliskipulag hefur aðeins að hluta komið til framkvæmda og forsendur hafa breyst frá gildistöku þess.“

Bent er á að í gildi er skipulag sem rammar inn veglegt og fallegt tjaldsvæði á góðum stað þar sem tekið hefur verið tillit til þægilegrar aðkomu og nálægðar við alla helstu þjónustu. Í skipulaginu var einnig skapað huggulegt svæði fyrir ferðaþjónustu þar sem kajakar gátu lagt út úr fallegum víkum, þeirri þjónustu hefur nú verið komið fyrir við smábátabryggjuna á tanganum að norðaustan á minna aðlaðandi svæði. Á skipulaginu var einnig skilið eftir votlendi þar sem tilgangurinn var að skapa svæði fyrir fugla og fuglaskoðun og áttu þannig ferðalangar, íbúar og atvinnustarfsemi að geta lifað í sátt og nálægð við hafið, fjöllin, náttúruna og aðra ábúendur hennar.

Allt þetta var gert með það fyrir sjónum að skapa notalegt og aðlaðandi umhverfi tjaldsvæðis sem hefði mikla sérstöðu á landsvísu og væri vegna þess eftirsóknarvert.
Framkvæmdir við skipulagið hafa aðeins að hluta komið til framkvæmda vegna þess að Fjallabyggð hefur dregið lappirnar hvað það varðar.

Þar eru hálfkláraðir stígar og þar er engin aðstaða fyrir tjaldgesti annað en autt tún og bert svæði án aðstöðu, gróðurs, gróðurmana eða annarra vindbrjóta sem gera svæðið huggulegt. Því er varla hægt að telja að uppbygging tjaldsvæðis hafi farið í gang að því magni sem ætla mætti á þeim 10 árum sem skipulagið hefur verið í gildi eða 14 árum frá undirritun samkomulagsins við Rauðku.

Með þessu framtaksleysi hefur Fjallabyggð skorast undan því að uppfylla samkomulag það sem gert var við Rauðku ehf. árið 2012 og ítrekað hefur verið bent á gegnum tíðina.

Forsendur þess að endurskoða þurfi skipulagið eru því að minnsta kosti að hluta til byggðar á sinnuleysi Fjallabyggðar sjálfrar við að byggja upp það framúrskarandi tjaldsvæði sem þarna hefur verið skipulagt og skapað hefði öflugra umhverfi fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.

Er það jafnframt ein forsenda þess að mögulegt sé að taka til framkvæmda það skipulag sem í gildi hefur verið frá 2017 (breytt 2024) fyrir miðbæ Siglufjarðar og felur í sér að færa tjaldsvæðið úr miðbænum á tangann.

Kafli 4.1

„Gert er ráð fyrir að draga úr umfangi tjaldsvæðis“

Selvík hefur verulegar áhyggjur af því að framkvæmd Fjallabyggðar á skipulögðu tjaldsvæði á tanganum hafi ekki nú þegar orðið að veruleika. Selvík hefur enn meiri áhyggjur af því ef þrengja á að skipulagi þess tjaldsvæðis sem nú þegar er á gildandi deiliskipulagi og að nýtt séu til þess þau rök að svæðið hafi ekki nýst sem skyldi fram til þessa og forsendur séu vegna þess breyttar. Undirstrika skal að forsendubreytingar um nýtingu svæðisins undir tjaldsvæði eru eingöngu til komnar vegna framkvæmdaleysis Fjallabyggðar á svæðinu.

Selvík bendir á að félagið og félög tengd því hafi byggt upp umfangsmikla ferðaþjónustu í sveitarfélaginu sem meðal annars byggi á þeim forsendum að á þessu svæði sé stórt og eftirsóknarvert tjaldsvæði með öllum þeim þægindum sem nútíma svæði kalla á. Þá reiði margir aðrir þjónustuaðilar í bænum sig á slíkt hið sama. Vanefndir Fjallabyggðar vegna þessarar uppbyggingar hafa óhjákvæmilega dregið verulega úr aðsókn ferðamanna á svæðið enda gera þeir kröfu um gæði, þjónustu og þægindi sem ekki eru til staðar á tjaldsvæðum á Siglufirði í dag í því magni sem þörf er á fyrir þá þjónustu sem byggð hefur verið upp á svæðinu og þjónustuaðilar á Siglufirði höfðu réttmætar væntingar til samkvæmt gildandi skipulagi.

Bent er á í þessu samhengi að sambærileg stærð af tjaldsvæðum og er á gildandi skipulagi má finna víða um land og eru þau tjaldsvæði þar sem gæði og þjónusta eru höfð að leiðarljósi þétt setin yfir sumartímann. Selvík telur því að skerðing á umfangi tjaldsvæðisins og þeim gæðum sem upp var lagt með við gerð skipulagsins sé óásættanleg og um leið vera brot á:

A) réttmætum væntingum þeirra þjónustuaðila sem hafa byggt upp ferðaþjónustu tengda starfsemi á Siglufirði frá árinu 2017 (2012 í tilfelli Selvíkur).

B) samkomulagi sem Rauðka ehf. (nú Selvík ehf.) gerði við Fjallabyggð árið 2012.

Kafli 6, kynning og samráð

Selvík bendir á að gert hafi verið skriflegt samkomulag við Rauðku ehf. sem tekur meðal annars til svæðisins og hefur bein áhrif á aðra hluti samkomulagsins. Í samkomulaginu kemur fram í kafla B, blaðsíðu 5, „Aðilar eru sammála um að vinna saman að verkefninu í þeim tilgangi að skapa byggðarlaginu sérstöðu og gera það eftirsóknarvert í augum ferðamanna í framtíðinni“.

Þá ítrekaði bæjarstjórn Fjallabyggðar við Selvík í svarbréfi þann 31. júlí 2020 „að Fjallabyggð hefur þegar lýst yfir að til standi að ljúka þeim verkefnum sem um ræðir og fram koma í liðum 1 og 2 í samkomulaginu á yfirstandandi kjörtímabili“. Kjörtímabilinu lauk árið 2022 og er enn langt í land með að ljúka þeim verkefnum sem um ræðir.

Í ljósi sögunnar og þeim endurteknu ábendingum Selvíkur og tengdra aðila að brotið sé á samkomulaginu, nú síðast varðandi fyrirhugaða breytingu á skipulagi miðbæjarins, þá teldist ekki óeðlileg krafa að kallað sé eftir sérstakri samvinnu við Selvík vegna málsins.

Því miður gefur bókun fulltrúa A-lista á 906. fundi bæjarstjórnar dags 2. febrúar, og takmörkuð þátttaka annarra fulltrúa bæjarstjórnar til að leiðrétta það sem þar kemur fram, til kynna ákveðna heift út í framlag Selvíkur til samfélagsins þar sem máluð er upp mynd sem er ekki í neinu samræmi við raunveruleikann, gögn málsins og fyrri staðfestingar bæjarfélagsins. Þetta skapar aukna tortryggni af hálfu Selvíkur út í allar þær breytingar sem bæjarstjórn hyggst ráðast í á svæðinu.

Samantekt athugasemda

Fjallabyggð tók að sér að skipuleggja nýtt tjaldsvæði á tanganum og ganga frá svæðinu með útivistargildi þess í huga. Er það liður í að færa tjaldsvæðið úr miðbænum og raungera það skipulag sem þar er í gildi. Skipulagið tók gildi árið 2017 og ítrekaði bæjarstjórn árið 2020 að stefnt væri á að ljúka framkvæmdum fyrir lok þess kjörtímabils, árið 2022. Enn er langt til lands.

Fjallabyggð hefur ekki tekið skipulag tangans til framkvæmda nema að litlum hluta, forsendur varðandi tjaldsvæði hafa því ekkert breyst. Ekki er hægt að fara fram á aðsókn tjaldgesta á Siglufirði aukist nema gott og nútímalegt tjaldsvæði sé til staðar sem uppfyllir þær kröfur sem notendur þjónustunnar gera.

Fjallabyggð hefur skapað þjónustuaðilum réttmætar væntingar með því að:

A) gangast að samkomulagi við Rauðku árið 2012.

B) setja í gildi deiliskipulag svæðisins árið 2017 í samræmi við samkomulag Rauðku frá árinu 2012.

C) lýsa því yfir árið 2020 að sveitarfélagið stefndi á að ljúka fyrir lok þess kjörtímabils framkvæmdum samkvæmt 1. lið (miðbær) og 2. lið (tanginn) samkomulagsins við Rauðku frá því árið 2012, yfirlýsing sem var árið 2020 byggð á gildandi skipulagi.

Skipulagsferlið, og þá sérstaklega að stefnt sé á að draga úr umfangi tjaldsvæðisins, gefur til kynna áframhaldandi sinnuleysi Fjallabyggðar gagnvart þeim samningum og skuldbindingum sem sveitarfélagið tók að sér með samkomulagi við Rauðku árið 2012.

Samkomulag sem er til þess fallið að stuðla að sjálfbærni ferðaþjónustunnar og efla rekstrargrundvöll þeirra þjónustuaðila í sveitarfélaginu sem reiða sig á komu ferðamanna yfir sumartímann.