Erlendir kennarar heimsóttu Menntaskólann á Tröllaskaga á dögunum í gegnum Erasmus+ samstarf, en um var að ræða hóp frá Spáni, Austurríki og Danmörku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MTR.
Samkvæmt MTR er áhugi erlendra kennara á skólastarfinu áfram mikill og hafa nokkrir hópar komið í heimsókn á þessari önn. Markmið heimsóknarinnar nú var að kynna sér kennsluhætti skólans og fylgjast með kennslu í daglegu starfi.
Í tilkynningunni segir að niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir gestina að heimsókn lokinni sýni að hún hafi tekist afar vel. Gestirnir hafi meðal annars hrósað móttöku, skipulagi og samstarfi við starfsfólk skólans og lýst dvölinni sem bæði faglegri og lærdómsríkri.
Sérstaklega vakti athygli þeirra sveigjanlegt skipulag náms, áhersla á sjálfstæði nemenda og öflug nýting stafrænnar tækni í kennslu. Þá hafi þeir tekið með sér nýjar hugmyndir að kennsluaðferðum, einkum tengdar samfelldu námsmati, verkefnavinnu og nemendamiðaðri nálgun.
Að sögn MTR skila slíkar heimsóknir einnig miklu til kennara skólans sjálfs. Umræður um kennslufræði og skólastarf með erlendum kollegum séu dýrmæt viðbót við símenntun þeirra og styrki faglegt starf innan skólans.
Heildarniðurstaða könnunarinnar var sú að heimsóknin hafi veitt bæði innblástur og aukið tengsl milli skóla, með von um áframhaldandi samstarf í framtíðinni.
Mynd: Gísli Kristinsson
