Um helgina hafði lögreglan á Norðurlandi vestra, við almennt eftirlit, afskipti af tveim erlendum ferðamönnum sem áttu að vera í sóttkví.

Höfðu þeir við komuna til landsins farið í fyrri skimun eins og reglur kveða á um, og svo haldið til í sumarbústað í umdæminu.

Höfðu þeir þrátt fyrir að hafa kynnt sér allar reglur hvað varðar sóttkvíar, farið í ferðir út frá bústaðnum á bifreið og meðal annars farið á skíði. Það skal tekið fram að það var þó ekki á meðal almennings.

Það vekur athygli að ferðamennirnir áttu bókað flug til síns heimalands degi síðar en niðurstaða seinni skimunar átti að liggja fyrir.

Á þetta athæfi hafa verið lagðar sektir og hafa þeir hvor fyrir sig greitt 200.000 krónur til ríkissjóðs.

Mynd/lögreglan á Norðurlandi vestra