Uppskriftin miðast við fyrir einn og ber að margfalda eftir fjölda gesta. Hún er þó drjúg og fyrir fjóra dugar að gera þrefalda uppskrift.
Heitt súkkulaði (uppskrift fyrir 1)
- 3 dl nýmjólk
 - 1 msk kakómalt (t.d. Nesquick)
 - 1 ½ msk flórsykur
 - smá salt
 - 4 bitar suðusúkkulaði (4 molar af suðusúkkulaðiplötu)
 
Setjið allt í pott og hitið að suðu. Hellið í bolla og setjið vel af þeyttum rjóma og súkkulaðispæni yfir.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit
						
							
		
			
			
			
			

