Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er í samstarfi við Velferðarsjóð á Eyjafjarðarsvæðinu varðandi umsóknir um jólaaðstoð 2021. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum Bónus eða Samkaupa til matarkaupa. Umsóknir er hægt að nálgast á íbúagátt, skrifstofu Dalvíkurbyggðar eða hjá stafsmönnum félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar og eins er hægt að sækja um símleiðis í númerið 460-4900.

Skilafrestur á umsóknum fyrir jólaaðstoð er föstudaginn 3.desember 2021, eftir þann tíma er búið að loka fyrir umsóknir um jólaaðstoð.

Mikilvægt er að umsókninni fylgi staðgreiðsluyfirlit umsækjanda og maka/sambýlings sem nálgast má inn á www.skattur.is, með íslykli eða rafrænum skilríkjum og velja í efstu línu almennt, fara í yfirlit og velja þar staðgreiðsluskrá RSK og passa að árið 2021 sé valið.. Þetta blað er líka hægt að nálgast hjá Ríkisskattstjóra. Starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar geta einnig aðstoðað einstaklinga við að nálgast staðgreiðsluyfirlitið með því að viðkomandi komi með rafræn skilríki.

Ef umsókninni fylgir ekki staðgreiðsluyfirlit telst umsóknin ógild.

Úthlutun jólaaðstoðar mun eiga sér stað eins fljótt og auðið er þó eigi síðar en 17.desember.

Frekari upplýsingar veita starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900.