Grískur ofnréttur

  • Kartöflubátar
  • 500 gr svínalund
  • 1 rauð paprika
  • 1 rauðlaukur
  • 1 askja kokteiltómatar
  • 1 fetakubbur

Marinering fyrir kjötið

  • 1 ½ dl olía (ekki ólívuolía)
  • 2 msk sojasósa
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 tsk engifer (krydd, ekki ferskt)
  • 1 ½ tsk sambal oelek (chilimauk sem fæst t.d. í Bónus)
  • salt og pipar


Köld sósa

  •  2 dl sýrður rjómi (1 box)
  • 3 msk majónes
  • 1 tsk ítalskt salatkrydd eða jurtakrydd
  • 1 pressað hvítlauksrif

Deginum áður:

Blandið hráefnunum í marineringuna saman. Skerið kjötið í ca 1 cm þykkar sneiðar og leggið í marineringuna. Látið standa í lokuðu boxi eða skál í ísskáp í sólarhring.

Blandið hráefnunum í sósuna saman og geymið í ísskáp.

Sama dag:

Hitið ofnin í 220°. Skerið kartöflur í báta og leggið í stórt eldfast mót eða ofnskúffu. Saltið og kryddið með smá chili explosion kryddi og setjið í ofninn í 20-25 mínútur.

Skerið rauðlaukinn og paprikuna í báta og kirsuberjatómatana í fernt. Takið kartöflurnar úr ofninum og leggið niðurskorið grænmetið yfir þær. Leggið kjötið ásamt marineringunni yfir grænmetið og endið á að mylja fetakubbinn yfir kjötið. Setjið í ofninn í 20-25 mínútur.

Berið fram með köldu sósunni og jafnvel ólívum og góðu brauði.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit