2,4-Dínítrófenól eða DNP er iðnaðarefni sem ólöglega er selt sem fitubrennsluefni og er hættulegt til inntöku. DNP hefur valdið dauðsföllum og alvarlegum eituráhrifum. Efnið er ekki leyfilegt til manneldis og ætti því ekki vera í umferð. Það er ólöglegt að selja DNP sem fæðubótarefni en þrátt fyrir aðvaranir frá ýmsum alþjóðalegum stofnunum virðist efnið rata til einstaklinga í gegnum netverslun.

Matvælastofnun fær váboð tilkynningar í gegnum RASFF tilkynningakerfi (The Rapid Alert System for Food and Feed).  Frá 2021 til júní 2022 hefur stofnunin fengið 3 tilkynningar um að DNP sé selt í gegnum netverslun. Tilkynningar hafa komið frá Tyrklandi og Tékklandi.

Matvælastofnun hefur varað við notkun á DNP á heimasíðu sinni og útbúið upplýsingasíðu um efnið, sjá nánar í ítarefni. Með þessu vill Matvælastofnun beina því til neytenda að vera varkárir og að skoða með gagnrýnum augum þegar keypt er fæðubótarefni á internetinu.