Fyrsta unglingamót vetrarins var um helgina í TBR.

Sjö iðkendur frá Tennis og Badmintonfélagi Siglufjarðar fóru á mótið og stóðu sig ljómandi vel.

Marínó Örn Óskarsson vann gull í einliða U-11. Pálína Ósk Ómarsdóttir var í 2. sæti í einliða U-11. Sebastían Amor Óskarsson var í 2. sæti í einliða U-13 og í 2. sæti í tvíliða ásamt Erik Val frá BH. Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir var í 2 sæti í tvíliða í U-17-19 ásamt Lenu Rut frá BH.

Sjá myndir á facebooksíðu TBR.