- ýsa eða þorskur, magn eftir fjölda matargesta (uppskrift miðuð við 800 g)
 - 1 box paprikusmurostur (250 g)
 - 1 box sveppir (250 g)
 - 1 púrrulaukur
 - 2,5 dl rjómi + 0.5 dl mjólk (eða 3 dl matreiðslurjómi)
 - 1 grænmetisteningur
 - smá cayenne pipar (farið varlega því hann er sterkur! Ég nota um 1/8 úr teskeið)
 - krydd lífsins frá Pottagöldrum (eða önnur krydd eftir smekk)
 - rifinn ostur
 
Hitið ofninn í 175°.
Sneiðið sveppi og púrrlauk. Hitið olíu á pönnu og steikið sveppina og púrrlaukinn. Kryddið með kryddi lífsins (eða öðrum kryddum) og hellið rjóma yfir. Hrærið smurostinum saman við í skömmtum og bætið svo grænmetisteningi út í. Leyfið sósunni að sjóða við vægan hita á meðan fiskurinn er undirbúinn.
Skolið og þerrið fiskinn og leggið í eldfast mót. Kryddið með pipar og salti og hellið síðan sósunni yfir. Setjið rifinn ost yfir og eldið í 20 mínútur, eða þar til osturinn hefur fengið fallegan lit.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit
						
							
		
			
			
			
			

