Vegagerðin var að fá sendar eftirfarandi ábendingar frá veðurfræðingi fyrir daginn í dag.
30. desember – Talsverður lausasnjór er nú á Vesturlandi. Með deginum tekur að blása af norðaustri og þá skafrenningur og blinda. Hætt er við að vegir teppist.
Einkum á það við um leiðir vestur á Snæfellsnes og í Dali. En einnig í Borgarfirði, s.s. í Melasveit og undir Hafnarfjalli í eftirmiðdaginn, þar sem vindur nær sér upp við þessar aðstæður.