Aðalfundur Kvenfélagsins Æskunnar í Ólafsfirði verður haldinn í Brimsólum miðvikudaginn 11. mars klukkan 18:00.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf auk annarra mála. Að fundi loknum verða veitingar í boði á vegum stjórnar félagsins og er kaffigjald 1.000 krónur.
Nýjar konur eru sérstaklega hvattar til að mæta og taka þátt í starfi félagsins. Markmið fundarins er meðal annars að fara yfir starfsemi liðins árs og ræða verkefni fram undan.

Mynd: Magnús G Ólafsson

