Úrslit eru ljós í Ræsingu Skagafjarðar, en Ræsing Skagafjarðar er samkeppni sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samvinnu við Sveitarfélagið Skagafjörð og Kaupfélag Skagfirðinga efndu til um góðar viðskiptahugmyndir í Skagafirði, og var einstaklingum, hópum og fyrirtækjum boðið að sækja um þátttöku í verkefninu.

Þátttakendur fengu 10 vikur til að vinna viðskiptaáætlun fyrir verkefnin sín en á þeim tíma fengu aðstandendur verkefnanna fræðslu og mikinn stuðning verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar auk fleirum við gerð viðskiptaáætlunarinnar og hugsanlega við vöruþróun og frumgerðasmíði.

Tíu verkefni fengu þátttöku í keppnina og voru það fjögur verkefni sem kláruðu viðskiptaáætlanir sínar.

Fyrstu verðlaun að upphæð kr. 1.000.000 fengu þau Tómas Árdal, Selma Hjörvarsdóttir og Vildís Bjarkadóttir fyrir viðskiptahugmyndina Rjómaböð á Sauðárkróki. Önnur verðlaun að upphæð kr. 700.000 hlaut Erla Björk Helgadóttir fyrir Fjölskyldugarðinn Víðimel. Tvö verkefni fengu hvatningarverðlaun að upphæð kr. 300.000 og voru það þær Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir fyrir hugmyndina Verðandi, miðstöð endurnýtingar og Auður Herdís Sigurðardóttir fyrir hugmyndina Héðinsminni, þjónustumiðstöð.

Sveitarfélagið Skagafjörður þakkar þátttakendum kærlega fyrir þátttökuna.