Aðalfundur Sjóstangaveiðifélags Siglufjarðar var haldinn síðastliðinn laugardag. Þar fóru félagsmenn yfir hefðbundin aðalfundarstörf, meðal annars reikninga félagsins, félagsgjöld og horfur fyrir komandi veiðitímabil.
Á fundinum var einnig farið yfir árangur félagsmanna á liðnu ári. Í því samhengi var Sigríði Rögnvaldsdóttur afhentur bikar fyrir afrek sín á síðasta veiðitímabili, en hún átti ekki heimangengt á lokahóf félagsins. Meðal verðlauna sem hún hlaut var bikar fyrir annað sæti á Íslandsmeistaramóti kvenna.
Forsíðumynd með fréttinni er frá lokahófi Sjóstangaveiðifélags Siglufjarðar sem haldið var í október 2025. Fleiri myndir frá lokahófinu má skoða með því að smella hér.
Myndir: facebook / Sjóstangaveiðifélag Siglufjarðar





