Hið skemmtilega og árlega aðventurölt á Dalvík er í dag, fimmtudaginn 5. desember. Verslanir, gallery, markaðir, snyrtistofur, veitingastaðir og fleira með opið milli kl. 17 – 21. Salka Kvennakór með POP UP Kaffihús í Bergi, Karlakórinn kemur við á nokkrum stöðum og tekur lagið, kynningar og fleira.

EINU SINNI VAR Gallerý – Markaður á 2. hæð Kaupfélagshússins tekur að sjálfsögðu þátt. Fullt hús af skemmtilegum vörum. Jólagjafir, ný málverk og myndir, tilboð og sjón er sögu ríkari. Heitt á könnunni og piparkökur. ALLIR sem koma geta sett nafn sitt í pott og geta unnið STÓRAN Nóa Síríus Konfektkassa.