Fyrri Ævintýravika félagsins í sumar er fyrir börn fædd 2016 – 2018 og er á Siglufirði dagana 23. – 27. júní. Seinni vikan verður seinni partinn í júlí fyrir árganga 2017 – 2019.
Dagskrá er frá kl. 10 – 12 þessa daga og taka börnin þátt í ýmsum spennandi ævintýrum, má t.d. nefna, leiki og þrautir, fjöruferð, safnaferð, skógarferð o.fl. Mæting er við ærslabelginn á Blöndalslóð á hverjum morgni kl. 10.00. Munið að hafa börnin klædd eftir veðri og með smá nesti með sér hvern dag.
Þátttökugjald er 6.000 kr. fyrir vikuna, hægt er að nota frístundaávísanir, greiða beint inn á reikning félagsins, reikn: 0348-26-001314 kt. 490695-3389, eða greiða umsjónarmanni fyrsta dag vikunnar.
Umsjónarmaður er Þórarinn Hannesson íþróttakennari og skráning er með skilaboðum á facebooksíðu Umf Glói. Gefið þar upp nafn og kennitölu barns.
Vakin er athygli á því að börn sem eru í heimsókn í Fjallabyggð geta einnig tekið þátt.
Mynd/Umf Glói