Myndasamkeppni Húnaþings vestra lauk á dögunum með glæsilegum árangri og fjölmargar fallegar og fjölbreyttar myndir bárust í keppnina. Markmið keppninnar var að safna myndefni til notkunar í kynningarefni, á heimasíðu og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins og þar með efla sýnileika og ímynd Húnaþings vestra í gegnum linsuna.
Áhrifaríkasta myndin
Að þessu sinni hlaut Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir fyrstu verðlaun fyrir áhrifaríkustu myndina og fær hún í verðlaun 50.000 krónur. Mynd hennar þótti grípandi og lýsandi fyrir bæði náttúru og samfélag í Húnaþingi vestra.

Viðurkenningar veittar fyrir fleiri myndir
Auk aðalverðlaunanna voru fimm aðrir þátttakendur heiðraðir með viðurkenningu og fá 10.000 króna gjafabréf á veitingahús í héraði fyrir framúrskarandi myndir. Þeir sem hlutu viðurkenningu eru:
- Ingunn Elsa Rafnsdóttir
- Sigrún Davíðsdóttir
- Beate Kury
- Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir
- Rakel Rún Garðarsdóttir
Um keppnina
Keppnin var öllum opin og þátttakendur voru hvattir til að senda inn myndir sem sýna náttúru, mannlíf, viðburði og hversdagsleika í Húnaþingi vestra. Myndirnar máttu vera bæði nýjar og gamlar, svo lengi sem þær væru teknar innan sveitarfélagamarka og ekki bundnar höfundarrétti annarra.
Allar innsendar myndir verða merktar höfundi þegar þær eru birtar og notaðar í opinberum miðlum Húnaþings vestra.
Þakkir til þátttakenda
Sveitarfélagið þakkar öllum sem tóku þátt í keppninni og lögðu sitt af mörkum til að fanga fegurð og fjölbreytileika sveitarfélagsins. Myndirnar munu nýtast vel til að kynna Húnaþing vestra sem fallegt og lifandi sveitarfélag.