Miðvikudaginn 4. júlí. hófst N1 mótið á Akureyri.

Mótið er fyrir 5. flokk drengja og er stærsta árlega knattspyrnumót landsins með á fimmtánda hundrað þátttakendur auk þjálfara og liðsstjóra.  Mótið er haldið um mánaðamótin júní / júlí og stendur í 4 daga.

Á Vísir.is var eftirfaranandi frétt um N1 mótið í dag. Alls eru 188 lið skráð til leiks á N1-mótinu í knattspyrnu sem hefst á Akureyri í dag og stendur fram á laugardag. Mótið er nú haldið í 32. sinn og eru um tvö þúsund strákar mættir norður til að taka þátt.

Í tilkynningu kemur fram að Kópavogsliðin tvö, Breiðablik og HK, séu fjölmennust í ár, en frá þeim koma þrettán lið annars vegar og ellefu lið hins vegar. Strákarnir sem keppa á mótinu eru í 5. flokki og eru því fæddir 2006 og 2007.

Framkvæmd mótsins er í höndum KA, en auk strákanna sem keppa fylgja þeim þúsundir aðstandenda og þjálfara norður.

Í tilkynningunni er haft eftir Sævari Péturssyni, framkvæmdastjóra KA, að það sé alltaf jafn gaman að taka á móti öllum þessum liðum, sjá spennuna magnast og horfa upp á leikgleðina í augum drengjanna. „Við KA-menn erum stoltir af því að hafa umsjón með þessu frábæra móti, samstarfinu við N1 og hlökkum til að taka á móti keppendum, þjálfurum og öðrum þeim sem leggja leið sína hingað norður. Við minnum alla á að njóta tímans hér nyrðra, muna að þetta á að vera gaman og síðast en ekki síst hvetjum við foreldra og forráðamenn til að vera duglegir að taka myndir af drengjunum og merkja með #n1mótið á samfélagsmiðlum og halda þannig áfram að skrá þannig söguna,” segir Sævar.

Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru fyrsta mótsdaginn í leik UMFG og KA, leikurinn fór 2-1 fyrir Grindavík.

 

 

 

 

 

 

Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir og Vísir.is
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir