Akureyrarbær og Súlur, björgunarsveitin á Akureyri, hafa gert með sér samning um rekstrarstyrk til ársins 2027.
Styrkurinn er veittur til að styðja við öflugt björgunarstarf og þjónustu sveitarinnar í þágu bæjarbúa, meðal annars í samvinnu við Slökkvilið Akureyrar.
Samningurinn var undirritaður 18. september 2025 af Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrar, og Guðmundi Guðmundssyni formanni Súlna.
Mynd/Akureyrarbær