Íslensk stjórnvöld hafa gengið úr skugga um að ákvörðun Evrópusambandsins um að banna útflutning bóluefna gegn Covid-19 frá ríkjum sambandsins til landa utan þess mun ekki raska afhendingu bóluefna til Íslands.

Ísland er aðili að samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bóluefnum og situr við sama borð og ríki Evrópusambandsins varðandi þau bóluefni sem samningar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins taka til og afhendingu þeirra.

Bóluefnunum er útdeilt hlutfallslega jafnt til þeirra þjóða sem aðild eiga að samningunum miðað við íbúafjölda og Ísland er aðili að þeim samningum.

Mynd: Frá undirritun samnings um bóluefnakaup
Skoða á stjornarradid.is