Álagning – breytingar – innheimta
Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða; í gegnum Þjónustugáttina, eða með tölvupósti á netfangið innheimta@fjallabyggd.is.
Álagningarseðlar
Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis nema þess sé óskað. Vinsamlegast sækið um það fyrir 27. janúar 2025. Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Þjónustugáttinni (undir Gjöld í valmynd) og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“.
Gjalddagar
Gjalddagar fasteignagjaldanna verða tíu frá 1. febrúar til og með 1. nóvember 2025. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. apríl 2025 eða fyrr séu þau jöfn eða umfram kr. 40.000. Sækja verður um það fyrir 27. janúar 2025.
Eindagi er 1. hvers mánaðar á eftir.
Greiðslumátar
Beingreiðslur
Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.
Boðgreiðslur
Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Óska þarf eftir breytingu á greiðslumáta fyrir 27. janúar 2025.
Greiðsluseðlar í tölvupósti
Greiðsluseðill sendur í tölvupósti. Sendið tölvupóst á netfangið innheimta@fjallabyggd.is fyrir 27. janúar 2025 ef óskað er eftir að fá þennan kost virkjaðan.
Greiðsluseðlar
Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum. Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.
Ellilífeyrisþegar og örorkulífeyrisþegar
Lækkun fasteignaskatts á íbúðum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2024 vegna tekna ársins 2023. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2025, vegna tekna ársins 2024 er lokið. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt. Sjá nánar um reglur um afslátt af fasteignaskatti 2025.
Frekari upplýsingar
Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið innheimta@fjallabyggd.is eða í síma 464 9100.