Álagningu fasteignagjalda í Húnaþingi vestra árið 2025 er nú lokið. Allir fasteignaeigendur, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða lögaðila, geta séð álagningaseðilinn á vefsíðunni island.is, undir pósthólfinu. Þeir sem vilja skoða breytingu frá fyrra ári geta séð eldri álagningaseðilinn 2024 frá 23. janúar 2024.

Álagningarseðlarnir verða ekki sendir í bréfpósti, en hægt er að óska eftir að fá þá senda í tölvupósti. Slíkum óskum skal beina á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Gjaldstofn A-flokks fasteignagjalda (m.a. íbúðarhúsnæði og úthús, sjá 3. mgr., 3. gr. l.nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga) er óbreytt frá fyrra árið eða 0,475%, sorphirðugjöld eru óbreytt frá árinu 2024.

Afsláttur af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota og lögheimili eiga í sveitarfélaginu var reiknaður í upphafsálagningunni. Skatttekjur ársins 2023 liggja þar til grundvallar, en hámarksafsláttur er kr. 100.000.

Gjalddagar fasteignagjaldanna eru 8, sá fyrsti 1. febrúar og síðasti 1. september nk. Undantekning frá því er að séu gjöldin lægri en 20.000 er gjalddaginn 1. maí. Gjöld sem eru á bilinu 20.001 – 38.000 skiptast niður á gjalddagana 1. apríl og 1. júlí.

Hægt er að óska eftir að greiða fasteignagjöldin með beingreiðslum af bankareikningi greiðenda. Þessi valmöguleiki er virkjaður með því að hafa samband við þjónustubanka viðkomandi gjaldanda. Húnaþing vestra býður einnig upp á að greiða fasteignagjöldin með kreditkortum, en greiðendur sem kjósa að nýta sér þann valmöguleika í fyrsta sinn geta sent ósk þess efnis með töluvpósti á skrifstofa@hunathing.is. Aðrir fá senda greiðsluseðla inn á island.is, en þeir eru alla jafna ekki sendir í pósti. Hins vegar er hægt að fá greiðsluseðlana senda með töluvpósti, en óskir þess efnis skulu sömuleiðis senda á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Húnaþing vestra getur sent reikning vegna fasteignagjaldanna með rafrænum hætti. Óskir þess efnis er beðið um að senda á netfangið skrifstofa@hunathing.is 

Óskir um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu skal senda á netfangið skrifstofa@hunathing.is sem og almennar fyrrispurnir.

Gjaldskrá fasteignagjaldanna 2025 er að finna hér.