HSN heldur áfram vegferð sinni í Grænum skrefum og hafa nú allar starfseiningar stigið annað skrefið af fimm.
Til þess að ná skrefinu hefur stofnunin meðal annars skilað Grænu bókhaldi og sett sér umhverfis- og loftslagsstefnu ásamt aðgerðaráætlun með markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Jafnframt hefur stofnunin verið að auka hlutfall bifreiða sem ganga fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum. Stefnt er að því að ná þriðja skrefinu síðar á árinu.
Aðgerðir Grænna skrefa miðast einkum að venjulegri skrifstofustarfsemi og er því afar ánægjulegt fyrir stofnunina og starfsfólkið að ná þessu skrefi.
Verkefnið Græn skref er fjármagnað af umhverfis-, orku og og loftslagsráðuneytinu og er umsjón í höndum Umhverfisstofnunar.
Mynd/ graenskref.is