Tónlistarkonan Anna Richter sendir frá sér nýtt lag sem heitir “Got Me Feeling like” næsta föstudag, 8. nóvember.

FM Trölli ætlar samt að stelast til að spila það öðru hverju frá og með deginum í dag !

Lagið er upbeat og feel good ástarlag sem er fyndið því þetta er rauninni lag um sambandsslit, ástarsorg og tómleikann sem fylgir.

Anna segir:
Í textanum tala ég um “oh no why the bed so cold, thought I heard you calling out but no you´re not around” sem er mjög sorglegur texti en á sama tíma getur maður verið að dilla sér og dansa við það.

Ég var bara að reyna gleðja mig með að spila á gítarinn og þetta var útkoman, svona upbeat spin á mikla ástarsorg og einmanaleika. Stundum þarf maður að finna léttleikann í tilverunni án þess að vera hlaupa eða fela sig frá raunveruleikanum, bara dansa og vera í fíling í gegnum hann. 

Lag og texti er eftir Önnu sjálfa og Arnar Guðjónsson sá um production, mix og master.