Eins og fram hefur komið hefur gífurleg úrkoma verið á Tröllaskaga og sérstaklega í Ólafsfirði.
Upp úr hádegi í gær var Slökkvilið Fjallabyggðar fengið til aðstoðar við Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins þar sem mikið vatn var farið að safnast framan við íþróttamiðstöðina og sundlaugina. Farin var sú leið að koma koma vatni sem ekki komst niður í jarðveginn í tjörnina á Ólafsfirði en þar er útrás sem fer út í sjó og kemur því í veg fyrir að yfirborðsvant fari í fráveitukerfið í bænum.
Aðstoðarbeiðnir bárust úr fjórum húsum í bænum en aðeins í einu þeirra þurfi slökkvilið að bregðast við með einhverjum hætti.
Aðgerðir viðbragðsaðila í dag gengu vel. Tvær nýjar 2000ltr. dælur sem slökkvilið fékk afhendar nýverið sönnuðu gildi sitt sem og minni lausar dælur sem slökkvilið fékk sl. haust.
Dregið hefur úr skriðuhættu á norðanverðu landinu
Skráð þann 5. júní 2025 á vefsíðu Veðurstofu Íslands.
Úrkoma hefur minnkað mikið á Siglufirði, Ólafsfirði og í Útkinn frá því í gær, og mældist um 1 mm á klst í nótt á þessum stöðum. Það kólnaði fyrir norðan síðdegis í gær og í nótt og gert er ráð fyrir tiltölulega köldu veðri áfram í dag, með frosti til fjalla. Úrkomupáin fyrir daginn í dag er óbreytt frá því í gær, rigning á láglendi fyrir norðan þar til síðla kvölds, 1-3 mm á klst, snjókoma til fjalla, og úrkomulítið á morgun föstudag. Dregið hefur úr skriðuhætta á norðanverðu landinu og engar fréttir hafa borist af skriðuföllum. Laus jarðlög í fjallshlíðum á Norðurlandi eru þó víða vatnsósa og fylgst verður með aðstæðum í dag meðan úrkoma heldur áfram. Aðstæður á Ólafsfirði, þar sem varúðartilmælum var beint til íbúa efstu húsa undir Tindaöxl í gær, verða endurmetnar með morgninum.
Uppsöfnuð úrkoma í veðrinu síðan á mánudag er komin upp undir 230 mm á sjálfvirku veðurstöðinni í Ólafsfirði og tveggja sólarhringa gildi um 190 mm sem vænta má á áratuga fresti á því svæði. Endurkomutími virðist vera á bilinu 20-50 ár en mælingar á stöðinni ná aftur til ársins 1997.
Talsverður nýr snjór er til fjalla og vot snjóflóð hafa fallið ysta á Tröllaskaga, síðast í morgun ofan Ólafsfjarðarvegar. Fólk er því hvatt til að sýna aðgát undir fjallshlíðum, bæði vegna skriðu- og snjóflóðahættu.
Mynd/Slökkvilið Fjallabyggðar