Í ljósi aðstæðna hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta áramóta- og þrettándabrennum í Dalvíkurbyggð um óákveðin tíma.
Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að enn eru í gangi fjöldatakmarkanir og því mikilvægt að sýna ábyrgð í verki og hvetja ekki til hópamyndunar.