Arion banki á stórt safn listaverka eftir marga þekktustu listamenn þjóðarinnar. Í útibúi bankans á Ólafsfirði – sem nýlega var lokað – voru uppi nokkur verk úr þessu safni, sem mörg tengjast svæðinu sérstaklega. Meðal verkanna er vatnslitaverk eftir Þorvald Þorsteinsson af húsi sem stóð áður á lóðinni þar sem útibú bankans var í Ólafsfirði, og fallegt málverk eftir Kristinn G. Jóhannsson. Einnig er um að ræða verk eftir Immu, Ingibjörgu Einarsdóttur frá Ólafsfirði.
Það er ósk Arion banka að þessi verk fái að vera áfram á svæðinu og því þótti tilvalið að gefa þau til Listasafns Fjallabyggðar, þar sem þau halda vonandi áfram að gleðja heimamenn og gesti.
Oddgeir Reynisson útibússtjóri Arionbanka í Fjallabyggð afhenti verkin í listasal Fjallabyggðar í dag, þar sem Linda Lea Bogadóttir Markaðs- og menningarfulltrúi tók við gjafabréfi þess efnis.
Verkin sem um ræðir eru þessi:
Ljósmyndir og texti: Gunnar Smári Helgason