Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 4. og 5. nóvember 2020, frá kl.16:00 – 18:00 báða dagana.

 Kattahreinsun fer fram miðvikudaginn 4. nóvember.

 Hundahreinsun fer fram fimmtudaginn 5. nóvember.

 Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er eigendum skylt að örmerkja dýrin.
Samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi, að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt.
Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið. Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, þá er óskað eftir að fólk mæti með sóttvarnargrímu og ef hægt er bíði í bílnum með dýr sitt þangað til röðin er komin að því. Til að draga úr óþægindum vegna þessa og til að biðin verði sem styst er mikilvægt ekki sé verið að fara yfir önnur heilsufarsvandamál við dýralækni á þessum vettvangi.