Ágætu íbúar Fjallabyggðar
Bólusetningum við Covid fer nú fækkandi og verður breyting á skipulagi þeirra.
Við verðum í samvinnu við Dalvík og má skrá sig í bólusetningu þar.
Á Akureyri má mæta án þess að skrá sig (sjá heimasíðu HSN)
Í Fjallabyggð þarf að panta tíma og verður skipulagið eftirfarandi :
- Fram að áramótum verður bólusett þriðju hverja viku, fimmtudagana 21/10, 11/11 og 2/12 og þriðjudaginn 21/12.
- Eftir áramótin verður bólusett síðasta fimmtudag hvers mánaðar.
Á Dalvík þarf að panta tíma og er skipulagið eftirfarandi :
- Miðvikudagar um miðjan hvers mánaðar
Sýni við Covid eru tekin í suðurenda HSN Fjallabyggð á Siglufirði :
- PCR próf er tekið mánu-, miðviku- og föstudaga kl 10:00. Ath. panta þarf tíma. Aðra daga þarf að fara inná Akureyri.
- Hraðpróf alla virka daga kl 15:00. Skrá sig á Heilsuvera.is eða Hraðprof.covid.is, hringja síðan í 460 2100 og panta tíma í sýnatökuna.
Influensubólusetning hefst 28.október :
Panta tíma í síma 460 2100.
- Ólafsfjörður 28.okt. fyrir forgangshópa. 4. nóv. fyrir aðra.
- Siglufjörður 28. og 29. okt. fyrir forgangshópa. 4. og 5. nóv. fyrir aðra.
https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item16297
Ath líða þurfa 2 vikur á milli Covid bólusetningar og Influensubólusetningar.