Lögð fram drög að samningi SSNE f.h. 12 sveitarfélaga á starfssvæði samtakanna og N4 ehf. á 733. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar, er varðar verkefni sem hefur það að markmiði að efna til almennrar umfjöllunar og vekja athygli á landsfjórðungnum á breiðum grunni.

Samkvæmt yfirliti sem fylgdi áður framlögðu erindi SSNE þá er kostnaðarhlutur Fjallabyggðar vegna verkefnisins kr. 450.666 sem rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2022.

Bæjarráð samþykkti að taka þátt í verkefninu og felur bæjarstjóra að undirrita framlögð drög að samningi.

N4 óskar eftir fjárstuðningi Fjallabyggðar