Bæjarhátíðin Hofsós heim 2025 hófst þegar Sóli Hólm steig á svið í Höfðaborg og sló í gegn með bráðfyndnu uppistandi. Hláturinn var svo sannarlega í fyrirrúmi og vert er að nefna að uppistandssýningin verður endurtekin í kvöld. Miðasala fer fram á tix.is. 

Dagskráin í ár er glæsileg að vanda og öll ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í gær var meðal annars  í boði gönguferð í fylgd Kristínar og Ástu Einars frá Gróf að Hofsósi, súpur bornar fram í bænum og sundlaugarpartý fyrir yngri kynslóðina hefst kl. 21:00.

Laugardagurinn verður ekki síðri — í dag er fjölskyldudagur með leiktækjum, andlitsmálningu, listamarkaði, fjörugum leikjum, brennu og að sjálfsögðu stórtónleikar með Stuðlabandinu um kvöldið.

Sveitarfélagið hvetur öll nær og fjær til þess að gera sér glaðan dag og kíkja á Hofsós um helgina – þar verður stemmning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.