Óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

Umsóknarform er hér neðst.

Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í svokallaða bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

Fyrirsjáanlegt er að mikilvægar heilbrigðisstofnanir muni á næstunni þurfa að takast á við mönnunarvanda vegna COVID–19 veirunnar vegna veikindafjarvista eða fjarvista heilbrigðisstarfsfólks sem þarf að sitja tímabundið í sóttkví, líkt og þegar eru dæmi um. Með því að koma á fót bakvarðasveit eins og hér um ræðir, með lista yfir heilbrigðisstarfsfólk sem er reiðubúið til að hlaupa í skarðið ef á reynir, standa vonir til þess að heilbrigðisstofnanir geti mannað í stöður með hraði þegar á þarf að halda.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, heilbrigðisráðherra, landlæknir, sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri standa saman að yfirlýsingu um bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar og er hún hér meðfylgjandi. Stefnt er að því að ræða við félög fleiri heilbrigðisstétta á næstu dögum um mögulega aðkomu þeirra að bakvarðasveitinni.

Um skráningu í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu og jafnvel í fullt starf eða hlutastarf í allt að tvo mánuði ef hentar. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun. Skráningarformið er aðgengilegt á vef heilbrigðisráðuneytisins, www.hrn.is og einnig hér fyrir neðan ,,spurt og svarað um bakvarðasveitina”.

Opinberar stofnanir sem veita heilbrigðisþjónustu

Opinberar heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa  beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið á milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa. Til að hægt sé að bæta stofnunum upp kostnaðinn sem hlýst af ráðningu bakvarða, skulu þær halda sérstaklega utan um þann kostnað sem hver ráðning hefur í för með sér. Stofnanir sem um ræðir eru eftirfarandi: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri.

Spurt og svarað um bakvarðasveitina

Eftir hverjum er óskað í bakvarðasveitina?

Heilbrigðisstarfsfólki úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.

Til hve langs tíma?

Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig tímabundið í allt að tvo mánuði, hvort sem um er að ræða fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu.

Hver eru launin?

Laun taka mið af kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.

Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa?

Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum. Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði kjarasamninga við ríkið. Veikindarétturinn getur því verið allt að 30 dagar.

Hvar skráir fólk sig í  bakvarðasveitina?

Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform í þessu skyni, vinsamlegast smellið á tengilinn.

Hvernig verður staðið að ráðningunni?

Þær heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið á milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa.

Sjá einnig á stjornarradid.is
Mynd: stjornarradid.is