Íslandsmótið í vélsleðakeppni stendur nú yfir í Ólafsfirði þar sem fjórða umferð mótsins fór fram í gær, 10. apríl. Keppnin var afar spennandi og mættu keppendur víðs vegar að af landinu til leiks.
Fimmta umferð mótsins fer fram í dag, 11. apríl og má búast við áframhaldandi harðri keppni. Keppt er í fjölbreyttum flokkum, þar á meðal 30+ Hobby, byrjendaflokki, kvennaflokki, Pro og Sport flokki. Þá eru einnig unglingaflokkar á dagskrá, bæði almennur unglingaflokkur og unglingaflokkur kvenna.
Mótið er liður í Íslandsmótinu í vélsleðakeppni og skiptir miklu máli fyrir keppendur sem safna stigum í baráttunni um Íslandsmeistaratitla.
Bein útsending í dag laugardaginn 11. apríl 2026
Hér verður hægt að fylgjast með keppninni í dag í beinni útsendingu sem hefst klukkan 11:00.
Hér að neðan má sjá upptöku frá keppninni í gær 10. apríl.
Myndir: Skjáskot úr beinu útsendingu
Fleira tengt efni:
Íslandsmót í vélsleðakeppni dagana 10. og 11. apríl í Ólafsfirði
Aðkeyrsla lokuð við skóla og íþróttahús í Ólafsfirði vegna snjósleðamóts






