Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir enn eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur, 30 ára, sem er bú­sett á Ak­ur­eyri. Ekkert hefur spurst til hennar síðan á mánudagskvöld.

Í nótt leituðu björg­un­ar­sveit­ar­menn úr Eyjaf­irði og Þing­eyj­ar­sýslu að Ílónu Stein­unni.

Talið er líklegt að Ílóna, sem er um 170 sm. á hæð með dökkt axlarsítt hár, hafi verið á austurleið frá Akureyri til Húsavíkur á mánudagskvöldið. Lögreglan biður þá vegfarendur sem voru á þeirri leið frá kl. 19:20 – 21:00 að hafa samband í síma 112, geti þeir gefið upplýsingar eða telji sig hafa orðið varir við ferðir Ílónu.

Lög­regl­an birti í morg­un mynd af Ílónu sem tek­in er úr ör­ygg­is­mynda­vél og sýn­ir klæðaburð henn­ar þegar síðast var vitað um ferðir henn­ar. Hún var klædd svört­um jakka og með græna der­húfu á höfði.

Frétt uppfærð.

Stúlkan sem lögreglan á Norðurlandi eystra lýsti eftir í gærkveldi, Ílóna Steinunn, er komin fram heilu og höldnu.

Lögreglan þakkar þeim viðbragðsaðilum sem komu að leitinni fyrir vel unnin störf sem og fjölmiðlum fyrir miðlun upplýsinga.

Myndir/Lögreglan á Norðurlandi eystra