Í erindi Fjallasala ses. um framkvæmdastyrk í Undraveröld Pálshúss, dagsettu 27.10.2021 var lögð fram beiðni um 3.000.000 kr. framkvæmdastyrk vegna uppbyggingu kjallara hússins þar sem ætlunin er að gera ævintýraheim barnanna, Undraveröld Pálshúss. Erindið var tekið fyrir á 717. fundi bæjarráðs, þar sem samþykkt var að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Þann 25.11.2021 tók bæjarráð erindi til afgreiðslu sem vísað hafði verið til gerðar fjárhagsáætlunar og bókað þá:
Bæjarráð samþykkir að veita Pálshúsi framkvæmdarstyrk á árinu 2022 að upphæð kr. 500.000.- að því uppfylltu að Pálshús nái að fjármagna verkefnið.

Á 766. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var samþykkt að heimila útgreiðslu styrksins, kr. 500.000.